Lýsing | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Lýsing

Fyrsta ljóðlína:Lifandi Jesú, ljósið skæra
Höfundur:Gunnar Pálsson
bls.9–10
Bragarháttur:Fjórar línur (tvíliður+) ferkvætt: AAbb
Viðm.ártal:≈ 1735–1755
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Lýsing er einnig í Lbs 220 4to a, bls. 340, og eru þar engin lesbrigði.
Tón: Jésús Christus er vor frelsari
1.
Lifandi Jesú, ljósið skæra,
lof sé þér, heiður, dýrð og æra;
lætur þú daginn lýsa enn
líknsamur yfir oss auma menn.
2.
Yndið mitt og elskan eina,
yfir mér ljómar náð þín hreina.
Ýft þó þig hafi oft og þrátt,
iðrandi sál þú tekur í sátt.
3.
Sonur Davíðs, sól réttlætis,
sýn mér birtu þíns ágætis,
syndanna dimmu svipt mér frá
sem dagurinn myrkrið burt kann slá.
4.
Í þínu ljósi unn mér ganga,
í þér so megi gleði fanga;
í mitt hjartað eg inntek þig,
í þinn náðarfaðm tak þú mig.
5.
Njóta láttu mig náðar þinnar,
nauðhjálparinn andar minnar;
nær sem mér amar nokkur pín,
nákvæmust vertu aðstoð mín.
6.
Græðari minn, fyrir gæsku þína
greið til lífsins vegu mína.
Gef mér svo, Jesú, Guðs son klár,
gleði með þér um eilíf ár.