Söngur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Söngur

Fyrsta ljóðlína:Enn er vort þjóðlíf á æskubraut
Bragarháttur:Sex línur (þríliður) fer- og þríkvætt aBaaBB
Viðm.ártal:≈ 1900
Tímasetning:1901
1.
Enn er vort þjóðlíf á æskubraut,
athafnaskeið fyrir höndum.
Ekki’ er að hika við unna þraut,
engu að kvíða, sem falli í skaut.
Meinvættur lands vors sem Loki í böndum
liggur hjá haugorpnum fjöndum.
2.
Samfélagshvötin sitt ljúflingslag
leikur á raddstrengjum þýðum.
Hún hefir kallað oss hingað í dag.
Hún sníður mál vort í ræðu og brag.
Hún var það aflið, sem lyfti lýðum.
Líkt mun á komandi tíðum.
3.
Þróist hér sundrung, vor þjóðlífs höll
þrokar á grafhættum sandi.
Byltinga-straumanna boðaföll
brjóta þá líka hinn gróandi völl.
Heill sé þér, vinhlýi eindrægnis andi,
án þín ei byggist, svo standi.
4.
Tengjum í eining öll tvístruð lönd,
takmörkin sléttum, er standa.
Leggjum til samvinnu hönd í hönd,
herðum in fjölþættu samheldnis-bönd.
Reisum svo brúna í einum anda
yfir til framtíðarlanda.
5.
Enn roðar nýrunnin aldarsól,
Ísland, um fjöll þín og dali.
Enn lifir hreystin, sem hetjur ól,
harpan, sem knúð var hjá þjóðkónga stól.
Enn skulu börn þín, uns sól kveður sali,
sæmd þín í athöfn og tali.