SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3128)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Pontus rímur 5Pontus rímur – fimmta rímaBálkur:Pontus rímur
Fyrsta ljóðlína:Nú er eg fús að fara af stað
Viðm.ártal:≈ 1575
Flokkur:Rímur
Fimmta ríma Stafhent
1. Nú er eg fús að fara af stað,þó fræðum kunni eg lítið að, brotinn fjórða bæta upp hátt; beðið hafa þess margir þrátt.
2. Þeir sem elska gleði og glaum,gæti að hafa siðanna taum; fyrir utan dygð og æru má engin skemmtan lengi stá.
3. Ef allt fyrir mátann yfir að gár,eftirköst í launin fár; nú skal stofna staðfast ráð, sem stundum verður lítt að gáð.
4. Komi hér og heyri mig,hvör sem ætlar að gifta sig, hvörja kosti hafa á sú, helzt sem ættir kjósa frú.
5. Gættu mínum orðum að,ekki skal þér bregðast það; kvennagóssin þau eru þrenn; það skulu vita allir menn.
6. Hjartans góss er haldið stærst;hér með fylgir líkam næst; auðlegð heyrir og þar til með öðru því eg greina vil.
7. Ótti guðs er örugg trú,elska sönn af hjarta nú, speki forsjál fyrr og síð, fróm og réttlát allan tíð.
8. Hvar sem elska guðs er gleymd,græðist aldri þvílík eymd; forsmán öll á orðum hans allan brýtur dygða krans.
9. Hvört er auðmjúk ella grimm,opinber eður í lyndi dimm, mann það strax á sjónum sér sýnt hvört logn eður vindur er.
10. Af þeirra orðum merkja mámaður sá hvör, sem að vill gá, af hjartans nægð að munnur mest manna talar jafnan flest.
11. Rykti spyrja allir að,oftast plagar að sannast það, klæðnað þeirra og aðra art, ef þær stunda mjög á skart.
12. Lausligt mark að lízt mér slíktog lýti stór fyrir hoffólk ríkt að hlaða sig með silfur og seim, sem þar til væri fætt í heim.
13. Klæði þau mann beztu ber,sem bar þau fyrri sauður á sér; ekki er þetta máti manns að metna sig af flíkum hans.
14. Má eg segja mönnum, aðmér virðist ei hæfa það annað skinn hafa út á sér en innra manni sómi er.
15. Sjá þú til þess, segi eg þér,selskap hvörjum fylgja gjör; vini skalt þér velja þá, sem vitið hafa og skynbragð á.
16. Hæfir skyn að hafa á því,hvörjum garði ólst hún í og svo hvörja breytni blíð brúðurin hefur alla tíð.
17. Hvört sem hreppir sótt eður sár,sorg eður annað líkams fár, metnug til þín fjandskap fær, fussar, ef hún kemur þér nær.
18. Auðmjúk búin alltíð erí illu og góðu að fylgja þér; hvört sem þykir ljúft eður leitt, lætur sig ekki hindra neitt.
19. Ungri konu aldraður mannekki skyldi giftast hann; þau eiga ekki saman um sið, sín á milli halda frið.
20. Einatt hvört vill öðru mót;atvik þeirra eru jafnan ljót; eitt vill súrt, en annað sætt; ónýtt það, sem heldur mætt.
21. Þá heitt vill kalt eður kviklátt dautt,kost eður löst, það ríka snautt, brotið heilt sem bogið rétt, bundið laust sem kvistótt slétt.
22. Líkams góss skal greina brátt;gömul orð að sannast þrátt; flögð eru oft í fagri mynd; fyrir það er sú ásýn blind.
23. Fagran vöxt og fríðleik með,frúnum þó það verði léð, ef þær breyta beint sem má, betra er jafnan til en frá.
24. Góða siði dagfar dýrt,dygða fjöldi og málið skýrt, menntar vel á munn og hönd, málin kunna leysa vönd.
25. Æska góð og heilsa hreinhjónunum stýra á rétta grein; bú sitt kunni að vakta vel, vera hlýðin sem eg tel.
26. Þanninn gjör eg á þessu skil;þetta heyrir líkama til; þriðja góssi greini eg frá, sem gjörir liggja maktin á.
27. Ríkdóm, virðing, ærleg ættog það fé, sem vel er grætt, göfuga frændur, sem get eg enn, er gjöra að stoða í nauðum senn.
28. Þetta skyldi hugsa hvör,sem hafa mætti þessi gjör: á hjartans góssi mektin mest mönnum liggur jafnan bezt.
29. Annað bætast öllum má,enn þó bresti nokkuð á; sjaldan hleðst so allt á einn, að ekki fylgi löstur neinn.
30. Eg hefi átta eina þáekki neitt að vantaði á, þeirri var léð, og það skal tjá, það sem kvinnu prýða má.
31. Nú hefur leitt frá heimi hérhana drottinn burt með sér, henni gefið hvíld og frið um himnaríkis dýrðar mið.
32. Eftir þessa ungu frúeg má bera sorgir nú, þar til góður guð vill brátt gera bót á einhvörn hátt.
33. Dróttin fyrir mér drepi ei úteður dári mig, þó beri sút; eg verð að geta hennar hér, hvörsu lengi í veröldu er.
34. Glósað hef eg nú nú meir en margt,meyjunum hvörninn skyldi vart; nú skal segja sögunni frá, ef sá er nokkur hlýðir á.
35. Eftir liðin árin þrenn,alla boðar til hófsins menn kóngur Árgils, kappa lið; kætast munu flestir við.
36. Herlant með sér hafði þáhinn unga Pontum greint er frá; allur lýður hann augum sér; æskti honum lukku hver.
37. Greifi af Lénal hafði hanshýran frænda í þennan krans, Pólídas, sem prísa hæst, Ponto sjálfum gengur næst.
38. Kóngurinn Pontus kallar áog kvaddi hann sem hermi eg frá; báðu guð að gefa honum náð og gleði fyrir allt sitt ráð.
39. Síðan hann með blíðu baðfyrir borðum standa rétt í stað, skenkja kóngi skírast vín og skaranum kynna listir sín.
40. Kóngurinn Árgils heldur hófmeð herra, greifa og riddara lof; Sídónía, sagt er frá, í sínum sal hélt annað þá.
41. Frúr og jungfrúr fagna þá;flokkur er sá vænn að sjá; sem gleði er framin, gaman og skraut, gáði enginn þaðan á braut.
42. Sídónía fregnar fríðfrægð af Ponto alla tíð, bæði vexti og vænleik hans, að væri ei slíkur innan lands.
43. Síðan hugsar hæversk á,hvörninn megi hann augum sjá, diktar ráð til dag og nátt, að drósin megi hann líta brátt.
44. Eftir Herlant sendi súSídónía, stolt jungfrú, gaf honum fálka og fríðan hest og fagnar honum sem kunni bezt.
45. Hugsar með sér Herlant núhonum muni eitthvað vilja frú, að sem ekki augljóst er fyrir öllum þeim í salnum hér.
46. Innir jungfrú einka björt:„Eyrindi var það, Herlant, vort yðar dygð og æru að sjá, sem oss er jafnan sagt í frá.
47. Eg meina Pontus prýði og maktprís og lof sem heyri eg sagt, þann sem mæla ýtar enn, að árin hafi þér tyftað þrenn.
48. Færið oss hinn fríða sveinog fylgið honum í þeirri grein; oss langar til að líta þann landsins fólk af hjarta ann.“
49. „Náðuga frú, það nú skal skei nafni guðs nú yður í té.“ Hennar náð að þekkist það, þá fékk orðlof ganga af stað.
50. Herlant tók að hugsa margt;í hjartað fló sú ætlan snart þennan heiður og fengið fé fyrir hann Pontum veitt að sé.
51. Raunar frómur riddarinn var,reyndur dygð og vizku snar; sjálfur þennan gaf sér grun, grand af slíku vaxa mun.
52. Pólídas í Pontus stað,prúður hugsar ráðið það, færa hann til frúinnar skal með fremd í hennar breytta sal.
53. Sídónía frægðar fúsfór í lítið leyndar hús og með henni æru vend Elóis að nafni kennd.
54. Trúði henni hin tigna frúog tjáði þetta efni nú, hvörja girnd hún hefur að sjá hinn unga Pontum sagt er frá.
55. Á húsi einn var gluggi gjör,góða jungfrú út um sér; Pontus bíður brúðurin fríð; báðir komu loks um síð.
56. Af þessu megum skilja skjótt,hvað skeður bæði dag og nótt, að meyjar hugur hjá mönnum er, þó misjafnt láti finna á sér.
57. Hugurinn segir löngum leið,þó líði tíminn nokkur skeið; bágt er girnd að brjóta þá, sem beggja hjörtun standa upp á.
58. Sídónía svinnust gekktil sætis aftur í kvenna bekk; fagna þær með fremd og kurt, fá þær komu Ponto spurt.
59. Pólídas víkur prúðust að,prýðilig hann sitja bað, skipar honum sjálfs síns sess; synjar hann með öllu þess.
60. „Á yðrum stóli eg ætla núekki að sitja, náðuga frú; þetta ei eg þiggja vil; það heyrir með öngu til.“
61. Sídónía svaraði þá:„Sitja megi þér oss í hjá, að kurt og ættum komnir þér kóngsbarn ekki síður en vér.“
62. Sveinninn gaf henni aftur anz:„Eg er Pólídas, frændi hans, er hér kominn á yðar náð æðsta líta prýði og dáð.“
63. „Eg meinti Pontus mundi hérí mínum sal, sem standi þér.“ Höndlar hann með fremd og frægð; funda skeði það sinn bægð.
64. Herlant lætur kalla klén,kurtis jungfrú aftur í gén; virtist honum valla blíð vera mey á þeirri tíð.
65. „Bað eg yður með blíðu næst,“brúðurin svarar Herlant glæst, „Ponto hingað færa fyrst, svo frúnnar sína bæti lyst.“
66. „Því hafi þér svo þanninn breytt,“þýðust talaði gulli skreytt; „ætlan þín er yfrið ljót og æru minni þvert á mót.“
67. Riddarinn merkti reiði móðrétt af jungfrú, þar hún stóð, auðmýkt hafði alla þá, so yndi hennar mætti ná.
68. „Náðuga frú, það forlát mérfyrir þann guð á himnum er, gekk mér ekki ódygð til, yðar boð eg fylla vil.
69. Þá var ekki þann tíð frí,þénti Pontus salnum í; nú skal fara á nýja lund, nýtan leiða á yðar fund.“
70. Sídónía svarar hér:„Sjálfir máttuð dvelja fjer og ekki færa annan mér í hans stað sem gjörðu þér.
71. Herlant, skulu þér óttast ei,enginn segi við því nei; eg veit minn heiður að vakta í stað, vil eg þér ekki efið það.“
72. „Eigi þetta efa eg kann,ó, jungfrú,“ að sagði hann; „yðar föður eg óttast mest, á eg honum að reynast bezt.
73. Hér með og so óttast eg,ef aðrir spyrja á nokkurn veg, öfunda Pontum æ þess meir, ef yðar virðing skilja þeir.
74. Má hún skaða á marga leiðmannsins tungan illsku greið; til vestra lýta virðir hvör, veraldar eru það jafnan pör.
75. Sídónía hermir hér:„Hafðu öngan efa á mér; vildi eg heldur vera deydd en vor sé tignin heiðri sneydd.“
76. „Að vísu, jungfrú, vil eg þaðværi satt,“ að Herlant kvað; „nú skal leiða hingað hann og hraða ferð sem mest eg kann.“
77. „Bið eg yður bregða ei það,“brúðurin talar í annan stað; „dvel ei lengi að vísu við, vil eg bætist fyrra snið.“
78. Ljótur vani líðst um heim;liggur mér við að blóta þeim, sem hindra þau, er hafa sig rétt handlagt saman í ektastétt.
79. Býr sú til hin beiska dvölbáðum þeim þá vestu kvöl, þar hvört að annars hugsar til, en hirða ei önnur gleðispil.
80. Herlant gekk úr hennar sal,hæverskliga endar tal, Pontum leiða ljósrar til; lyktar ekki fyrri spil.
81. Sídónía gengur greittglöð og kát í húsið eitt, ef sæi Pontum svinna mær; sátu nú við gluggann þær.
82. Elóis lítur einatt út,angri firrð sem trega og sút, síðan hleypur úr sínum stað Sídóníu meyju að.
83. „Hér fer vænstur heimi íhvað skal mér að leyna því.“ Sídonía flimtrar flest; fagnaður því olli mest.
84. Þar næst gengur að glugga frú;getur að líta báða nú; leit hún Pontum ljósa þar; langt hans prýði af öllum bar.
85. Undrast, þegar hann augum sá,Elóis hún kallar á: „Hann vænn að máta vísu er, virðist ei so, jungfrú, þér?“
86. Elóis segir ekki mann,engill heldur væri hann: „Eigin hendi guð hefur gjört góður hann,“ kvað mærin björt.
87. „Á minn eið,“ að sagði sú,Sídonía, stolt jungfrú, „söguna þessa sannar mær.“ Í salinn aftur gengu þær.
88. Pontus kemur og Herlant heim;hvítar fagna meyjar þeim; kveðja þær með kurt og dáð; kætast tekur frúinnar ráð.
89. Sídónía mitt á mótmætum gekk með kærleiks hót; leiðir hann hin ljósa fús lofliga í sitt kóngligt hús.
90. Biður hann sínu sæti ísitja, en hann neitar því. „Þetta er ekki möguligt mér mekt að þiggja, sem bjóði þér.
91. Eg er ungur og yfrið smáróverðugur þess, jungfrú klár.“ Auðmýkt sýnist ágætlig, í öllum hlutum lækkar sig.
92. Sídónía svarar þá:„Sýni þér oss mikla þrá.“ „Þér eruð kyns,“ kvað kostuleg, „kóngsbarn ekki síður en eg.“
93. Pontus segir lýði og löndlúta undir jungfrú hönd. „En eg er fátækur og á ei neitt, utan það kóngur hefur mér veitt.“
94. Klénust svarar kyrtla skorð;„Kæri, talið ei þessi orð; guð skóp yður á önga lund að yfirgefa neina stund.“
95. Pontus segir svinnri þásjálfum guði í höndum stá, efni sitt og ágætt ráð allt sé komið hans á náð.
96. Þanninn bíði þeirra tal;þar af seinna greiða skal; rímu læt eg lykta hér; ljóða þrot að höndum fer. |