Stuðlafall – baksneitt – frumframsneitt (fimmsneitt) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Stuðlafall – baksneitt – frumframsneitt (fimmsneitt)

Kennistrengur: 3l:[o]-x[x]:5,4,4:Oaa
Innrím: 1A,1B,1E,2D,3D
Bragmynd:
Lýsing: Stuðlafall - baksneitt - frumframsneitt (fimmsneitt) er eins og stuðlafall baksneitt en auk þess gera fyrsta og önnur kveða frumlínu (fyrstu braglínu) sniðhendingar sín á milli langsetis og einnig við endarímsliðina. - Undir þessum hætti orti Bjarni Jónsson skáldi (d. um 1660) fjórðu rímu af Flóres og Leó og Kolbeinn Grímsson Jöklaraskáld (um 1600 - um 1683) fimmtu rímu af Sveini Múkssyni.

Dæmi

Tárug kæran málróm manna heyrir,
eftir rómnum auðgrund fer,
allt til þess hún fólkið sér.
Bjarni Jónsson skáldi: Rímur af Flóres og Leó IV:51

Lausavísur undir hættinum