Valstýft – frumframhent (mishent) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Valstýft – frumframhent (mishent)

Kennistrengur: 4l:[o]-x[x]:4,2,4,2:aaaa
Innrím: 1A,1B;3A,3B
Bragmynd:
Lýsing: Valstýft – frumframhent (mishent) er eins og valstýft óbreytt auk þess sem fyrsta og önnur kveða frumlína gera aðalhendingar sín á milli langsetis. Frumlínur eru oftast stýfðar og þá forliður á undan annarri og fjórðu línu.

Dæmi

Fátt var þrátt um fögur ljóð
og furðu hljóð
forn í horni harpan góð
þá hnípin stóð.
Sveinbjörn Beinteinsson, Háttatal, bls. 56, vísa 302.

Lausavísur undir hættinum