| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Þingmenn áður þekkt ég hef.
Það sem var er búið.
Nú er á þeim öllum nef
undarlega snúið.

Það mun vera sönnust sögn
að svona fer á þingum.
Nefin snúast á þeim ögn
undan nasahringnum.

Íllt er að vera einstakt naut
en þó verri saga
að vera bundið naut við naut
og neyddur til að draga.