| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Vínið tæra örvar allar

Bls.Heima er best Xl. / 381
Vínið tæra örvar allar
andans hræringar.
Myndir kærar, snöggar, snjallar,
snilldar bæringar.

Þótt veiti yndi tærir teigar
úr töfra lindunum.
Margan leiða vínsins veigar
og leiða í girndunum.

Sig að fylla og sinnið trylla
er synda gyllingin.
Víða snilli er varið ílla
vex því spillingin.