| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Þegar endar þetta æviskeið
og þrautir hverfa líkamans af þunga.
Þá er ég kominn á þá réttu leið
og endurnærist þá sálin unga.

Þá líð ég inn í ljóssins fagra sal
og lifi þar í dýrð með engla hjörðu.
Þá er það helsta trú og ástartal
og tel mig sloppinn þessari frá jörðu.

Þar vini þarna víst ég fæ að finna
og vera með í þessum sælureit.
Og þeim þá margt svo yndislegt að inna
er ég þá títt í dýrðarsölum leit.