| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Það er ráðgáta mikil mér

Höfundur:Grétar Fells
Bls.Lbs. Mbl. 43
Það er ráðgáta mikil mér.
Ég mæni oft í þann skugga.
Hví örlögin settu mig einmitt hér.
Einmitt við þennan glugga.

Það er næstum sem dragi hann dár
að drauma minna lendum.
Þó fellir himinn sín fögru tár
fyrir utan hann stundum.

Og ylur líka og augnafró
ætla ég til hans berist.
En fremur er það fábreytt þó
sem fyrir utan hann gerist.

Þótt út sýn vanti um völl og sæ
þá von ég læt mig hugga.
Einhvern tíma ég eflaust fæ
annan stærri glugga.