| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Hefur við mig heims á grund

Höfundur:Grétar Fells
Bls.Ljóðvængir
Hefur við mig heims á grund
helsi stritsins loðað.
En marga hef ég stolna stund
stökum saman hnoðað.

Markað svo á minnisblað
margt úr hjartans leynum.
En best mun vera að þegja um það.
Þetta er ást í meinum.