| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2


Tildrög

Til Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna.
Heiðra skal happadag.
Hús er af grunni reist.
Erjuðu af alúð hér
áhugamenn.
Gleðjumst og þökkum það.
Þetta er mikil stund.
Blómgist vort byggðasafn
bætist við enn.

Kambana klið ég man
kátlegan snælduþyt.
Hávært hesputré
höföld er þræddu glit.
Róandi rokkhljóð
raulaði kvöldin löng
meðan napra náfrétt
norðanátt söng.

Vetur er kvaddur
vorannir kalla að.
Kláran mylur kekki.
Kannastu við það?
Hér er trog og taðkvörn
tímarnir breytast ögn.
Fjallagrösin heilla
og fjallanna þögn.

Sumar með græna grund
glitrar á blómafjöld.
Glóir á gulli brydd
góðviðriskvöld.
Fitlar við finnung
flugbeittur Torfaljár.
Orfhólkur leysti af
ljáböndin í ár.

Girtu vel á Grána
góðan veldu reiðing.
Felldu nú fallega
framanundirlag.
Bæjardyrnar opnast
afi að skýjum gætir.
"e;Ekki er víst hann rigni
að ráði í dag"e;.
Hrífa létt í hendi
heyflekkinn saman dreif.
Bráðum er búið
að blómstra töðuvöll.
Miklu er aflokið
ánægður er bóndinn.
Kvöldverður bíður
komið þið nú öll.

Signdu þig sveinstauli.
Syfjaður ertu.
Blessaður lestu nú
bænirnar fljótt.
Þakkaðu Guði
sem gaf þér pabba og mömmu.
Veri hann skjöldur
og vernd þín í nótt.

Ró er yfir bænum.
Hvílast lúnir limir.
Annríki að morgni
endurtekur sig.
Stekkur yfir túngarðinn
stórhyrna gamla.
Ilmurinn af töðunni
á nú við mig.

Heill sé þér Húnaþing
héraðið fríða.
Átt þú sem áður
óskir og þrár.
Verði réttlætið,
vegur þinn og sómi.
Krýnist þinn hagur
um komandi ár.