| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Listarfylling líta má
ljóð með hyllast rökum.
Sveinn þar villist aldrei á
óðar snillitökum.

Þegar spakir heyrast hér
hróðrar kvaka svanir.
Einatt baka angur mér
andans takmarkanir.

Gæti ég Sveini líkst í ljóði
liprum fleina stungum
skyldi ég beina örvum óðs
að lífs meinum þungum.