| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Skýringar

Fyrir neðan vísuna stendur: Jóhannes úr Kötlum. Um kvöldvökuna (Herzelía)
Birti um rann af fornum funa
fljótt er annir leyfðu það
Gleði brann í mildum muna
mamma spann en pabbi kvað

Söng i eyrum sagan góða
sagði meir en orðin tóm
rann af geirum röðul þjóða
rauður dreyri máls í hljóm