Útmánaðavísur vetur 1923 | Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (46)
Bæjavísur  (1)
Gamankvæði  (3)
Tíðavísur  (1)

Útmánaðavísur vetur 1923

Fyrsta ljóðlína:Þorra tíð var talin góð
Viðm.ártal:≈ 1923
Tímasetning:1923
Þorra tíð var talin góð
til bjó þýður stundum.
Eitt sinn gríðar grimm með hljóð
gusaði hríð um foldarslóð.

Gadd af rindum greiddi hlý
gladdi lyndis vega.
Saddi kindur kylju frí
kvaddi yndislega.

Geilsar baða hnjúk og hlíð
hag sem glaðan vekur.
Einmánaðar unaðs stíð
undrast maður tekur.

Lífs oft frjóin litka tún
lækir flóa auðir.
Faðmast snjólaus brekka og brún
balar og móar rauðir.