Á Borgarvirki | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Á Borgarvirki

Fyrsta ljóðlína:Þeir sem héðan heiman fóru
bls.82-83
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Þeir sem héðan heiman fóru
en þó Húnvetningar vóru
sig að öllu oftast sóru
í ætt við Húnaþing.
2.
Fjöldinn allur aftur leitar
út til okkar fögru sveitar,
hér er líka best til beitar
í byggðum ættarlands.
3.
Nú skal Borgarvirki vígja
þetta vígi forna og nýja
þar sem alltaf inn má flýja
og örugg hljóta grið.
4.
Og við hyllum þá sem hlóðu
þá sem hér að verki stóðu
svo að fornu griðin góðu
hér gildi enn á ný.
5.
Þetta hérað hefur lengi
fóstrað hrausta, fræga drengi.
Þó að örðugt yrði gengi
af öllum Grettir bar.
6.
Að því saga sýnir rökin
þetta sanna Grettistökin.
Þótt við höfum breiðu bökin
hans byrði lyftum ei.
7.
Sé í bili í byggð að syrta,
enn hin bjarta Grettisskyrta
sýnir brátt að muni birta
og betri renna öld.
8.
Hérna út við hafið ysta,
hér á öldnum stöðvum lista
er þó alltaf gott að gista
hið gamla Húnaþing.
9.
Hér í norðurs hárri höllu
borg á hamri, fræg að öllu
gnæfir yfir vötn og völlu
í víðum fjallahring.


Athugagreinar

Kvæði þetta var flutt á hátíð, sem haldin var 23. júlí 1950 að Borgarvirki í Húnaþingi