Gangnabragur .... | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Gangnabragur ....

Fyrsta ljóðlína:Á Krosshóli er kæti
bls.111-112
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1980

Skýringar

Í tilefni af vígslu nýja gangnaskálans sem fékk nafnið Stekkjarhús ( í september 1980),
mætti Hjörtur hreppsstjóri að sjálfsögðu með nýjan gangnasöng.
Skálinn var höfðingleg gjöf frá Gunna Hær og Emmu konu hans.
Eftirfarandi skráir hann í gestabókina „ Sungið fyrir lýðinn að lokinni kaffiveislu.
Þótti fáum mikið til koma.....„
Á Krosshóli er kæti
af allra bestu gerð.
Þótt brotinn sé nú bær hér
og burtu sérhver ær hér
þá er nú Gunni Hær hér,
svo fullur sem þú sérð.

Hann skenkir okkur skála
af allra bestu gerð.
Því megi hann lifa lengi
og leika á glaða strengi
og kæta drós og drengi,
svo fullur sem þú sérð.

Fjallskilastjórinn strangi
af allra bestu gerð.
Hann gengur um svo glaður
sá gamalreyndi maður
en þolir ekkert þvaður
svo fullur sem þú sérð.

Og fjallkóngurinn frækni
af allra bestu gerð.
Hann lítur yfir lýðinn
svo léttfættan og hlýðinn
og er þá engu kvíðinn
svo fullur sem þú sérð.

Og gangnagarpar slyngir
af allra bestu gerð.
Þeir sitja hér og syngja
og saman glösum klingja
og hátíð inn þeir hringja,
svo fullur sem þú sérð.

Og búinn er nú bragur
af allra bestu gerð.
Upp runninn dýrðardagur,
svo dásamlega fagur,
þá ríkir réttarslagur,
svo fullur sem þú sérð.