Morgunfegurð | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Morgunfegurð

Fyrsta ljóðlína:Nú er frítt við fjarðarstrendur
Höfundur:Óskar Karlsson
Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Náttúruljóð
Nú er frítt við fjarðarstrendur
fyllir loftið vængjablak.
Þíður blærinn sumri sendur
sveipar lífsins andartak.
Yfir landi tíbrá titrar
töfrar dagsins gígjuspil.
Fagur vorsins gróður glitrar,
gleðst við morgunsólaryl.

Allt er nú sem endurvakið,
örvað nýjum gleðihljóm,
laufguð rós og lóukvakið
lofa mildan skapadóm.
Söngur allra sumargesta
semur lífi þakkargjörð.
Náttúrunnar munað mesta
miðlar okkar fósturjörð.