| BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra
AAAA1

Nú vaki ég aleinn og komið er kvöld

Höfundur:Friðrik Hansen
Bls.46
Flokkur:Ástavísur
Nú vaki ég aleinn, og komið er kvöld
og kyrrð yfir heimilið mitt.
Ég skrifa á himinsins heiðríkjutjöld
í huganum nafnið þitt.