Mælifellshnjúkur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Mælifellshnjúkur

Fyrsta ljóðlína:Þú tignarmynd, sem tindum ofar fjalla
bls.25–26
Viðm.ártal:≈ 0
Flokkur:Náttúruljóð
1.
Þú tignarmynd, sem tindum ofar fjalla
teygir höfuð efst í veðra sjá
og hrími stokknum hamra beitir skalla,
þar hvirfilvinda straumur brotnar á,
hjálm þinn gyllir glóeyg ljósa móðir,
glöð þá stígur fyrst af drafnar beð,
hér af sést að himindíar góðir
hafa þér slíkan tignarskrúða léð.
2.
Þinn fimbulaldur enginn talið getur,
þinn afmælisdag telur saga nein,
yfir þrotna aldaraða vetur
Urðar dóma leistu marga grein.
Þú hlýddir rór á skálma hljóm og skjalda,
er skatnar tróðu dreyrug rómu göng,
þar dörvar bjarta bruddu Mistar falda
þú bergmálaðir hvellan Hildar söng.
3.
Þú hlýddir fyrst þá hóstaði hvofti auðum
Hekla þrungin foldar iðra glóð
og foraðshættum fnæsti blossa rauðum
og feykti mökk um bjarta mána slóð,
logastraumur lék um eng og haga,
ljósa björk og þéttan birkireit.
Þér árbornum þessi kunn er saga,
hinn þögli ás, er ekki vætta leit.
4.
Þinn bjargstóll ekki bifast þar við náði,
þó brynni grund og titraði Dvalins höll,
köldu brosi hafðir jafnt að háði
Heklu drun og sprungin drangatröll.
Enn um feld þinn úrgar perlur glóa
Íslands byggðar sem á fyrstu tíð,
enn um stól þinn ungar jurtir gróa,
og enn er mynd þín tignarleg og fríð.