Íslandsminni (Lýðfræga fósturbyggð) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Íslandsminni (Lýðfræga fósturbyggð)

Fyrsta ljóðlína:Lýðfræða fósturbyggð
bls.16–17
Bragarháttur:Sjö línur (tvíliður) aabcccb
Viðm.ártal:≈ 1850
Tímasetning:1860
1.
Lýðfræga fósturbyggð,
frostheiðum möttli skyggð,
fjalleyjan fríð!
móir vor mæran brag
megir þér færa’ dag;
flytji þér heillalag
hverfandi tíð!
2.
Sólin úr suðri snýr,
sælu þér nýja býr,
anda, líf, yl;
fræið sem falið er,
fósturjörð, hvert hjá þér
lifni’ upp og lyfti sér
ljóssala til.
3.
Hvelfist þér himintjald
heilagan yfir fald
síbjart og blítt!
Blessist þín byggðin öll,
blessist um dal og völl
vorblóm og vatnaföll
við árið nýtt.
4.
Lýðfræga fósturbyggð,
frelsisins möttli skyggð,
fjalleyjan fríð!
Allir þig elskum vér,
ávallt að lifa þér
hjartfólgin ósk vor er,
einlæg og blíð.