Kvöldskatt fékk ég, kær og þekk | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kvöldskatt fékk ég, kær og þekk

Fyrsta ljóðlína:Kvöldskatt fékk ég, kær og þekk
bls.547
Bragarháttur:Ferskeytt – hringhent (hringhend ferskeytla) – hringhenda
Viðm.ártal:≈ 0
Flokkur:Matarvísur

Skýringar

Formáli fyrir vísunum:

Það er enn siður sumstaðar fyrir norðan (í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum að minnsta kosti) að húsbændur veita hjúum sínum eitt kvöld ótiltekið öndverðlega á jólaföstunni svo mikið sælgæti í mat sem þeir eiga fjölbreyttast og bezt til á heimilinu, og ber öllum saman sem það þekkja að það sé mesta kethátíð[1] á árinu, og keppast jafnvel öreigar við að veita hjúum sínum þenna kvöldskatt og kljúfa til þess þrítugan hamarinn hvað litla björg sem þeir eiga í húsum   MEIRA ↲
1.
Kvöldskatt fékk ég, kær og þekk
konan gekk um beina:
magáls þekkja mundi eg smekk;
má því ekki leyna.
2.
Langur þar hjá leggur var,
laukinn bar hann gæða;
bónda skar ég bitann snar,
brátt því fara að snæða.
3.
Stykki hér með hryggjar er,
huppsneið skerast mundi,
flot og smérið baugsól ber
blossa hvera þundi.
4.
Rifið breytt mér var og veitt,
varla sneitt af skorti.
Það var feitt og fleira en eitt,
frá er neitt ég gorti.
5.
Af barni rollu bringukoll
baugs lét tolla lína
á mínum bolla mæt, og holl,
mátti ég hrolli týna.
6.
Hákarls niðið hafði kvið
hrundin iðu-glansa
og lagði niður á leirfatið;
lá mér við að stansa.
7.
Efst lá kaka eins og þak
sem eldsins bakan herti;
barðið spraka meður mak
í munninn rak og skerti.
8.
Þakkir fáðu, þakin dáð
þorna láðin kæra,
fyrir þáða þessa bráð
og þægð sem náðir færa.