Sumarnótt á Þingvöllum | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sumarnótt á Þingvöllum

Fyrsta ljóðlína:[Fyrsta ljóðlína ekki skráð]
Viðm.ártal:≈ 0
Sumarnótt á Þingvöllum.

1.
Sindra lón í sólareldi
sveipar roði himinboga
töfrum skartar vorsins veldi
vættir duldar í mig toga.
Næturkyrrðin fer um foldu
frjáls í kjarri blærinn hjalar.
leggur ilm frá mjúkri moldu
mínu hugarlyndi svalar.
2.
Fossinn úðar bergið bláa
byltist áin niður gilið
þakið mosa er grjótið gráa
greypt er mynd í klettaþilið.
Sumarnóttin sæld mér veitir
sofa blómin rótt á velli.
Aftansólin Skjaldbreið skreytir
skrúði er á Ármannsfelli.
3.
Staldra við hjá Kjarvalskletti
kanna vil þar hylinn djúpa
Glittir víða í græna bletti
grösin smáu höfði drúpa.
Hyljir,iður hamrar bláir
haunið grátt og búðartóttin
undraheima andinn þráir
unaðshlý og björt er nóttin.
4.
Undirspilið lækja og linda
legg ég hlustir við í næði
á lygnu vatni svanir synda
syngja þrestir hugljúf kvæði.
Af mér drungann hér mun hrista
hlýna mínar andansglóðir
Hérna finnst mér gott að gista
ganga um fornar söguslóðir.