Söknuður | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Söknuður

Fyrsta ljóðlína:Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað?
bls.99–101
Bragarháttur:Óháttbundið ljóð
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað?
Og ljóðin, er þutu um þitt blóð frá draumi til draums,
hvar urðu þau veðrinu að bráð, ó barn, er þig hugðir
borið með undursamleikans
eigin þrotlausan brunn þér í brjósti!
hvar?
2.
Við svofelld annarleg orð,
sem einhver rödd lætur falla
á vorn veg — eða að því er virðist,
vindurinn blæs gegnum strætin,
dettur oss, svefngöngum vanans, oft drykklanga stund
dofinn úr stirðnuðum linum.
Og spunahljóð tómleikans lætur í eyrum vor lægra.
Og leiðindin virðast í úrvinda hug vorum sefast.
Og eitthvað, er svefnrofum líkist, á augnlok vor aldar,
vér áttum oss snöggvast til hálfs, og skilningi lostin
hrópar í allsgáðri vitund
vor sál:
Hvar?
3.
Ó hvar? Er glatað ei glatað?
Gildir ei einu um hið liðna, hvort grófu það ár eða eilífð?
Unn þú mér heldur um stund, að megi ég muna,
minning, hrópandi rödd,
ó dvel!
4.
En æ, hver má þér með höndum halda,
heilaga blekking!
Sem vængjablik svífandi engla
í augum vaknandi barna
ert þú hverful oss, hversdagsins þrælum . . . .
Og óðar en sé oss það ljóst, er undur þitt drukknað
í æði múgsins og glaumsins.
5.
Svo höldum vér leið vorri áfram, hver sína villigötu,
hver í sínu eigin lífi vegvilltur, framandi maður;
og augu vor eru haldin og hjörtu vor trufluð
af hefð og löggrónum vana, að ljúga sjálfan sig dauðan.
6.
En þei, þei, þei — svo djúpt sem vor samviska sefur,
oss sönglar þó allan þann dag
við eirðarlaus eyrun
eitthvað því líkt sem komið sé hausthljóð í vindinn,
eitthvað því líkt sem syngi vor sálaða móðir
úr sjávarhljóðinu í fjarska . . . .
Og eyðileik þrungið
hvíslar vort hjarta
hljótt út í bláinn:
Hvar? . . . . Ó hvar?