Fjallið Einbúi | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Fjallið Einbúi

Fyrsta ljóðlína:Hann Einbúi gnæfir svo langt yfir lágt
bls.378
Bragarháttur:Átta línur (þríliður) fer- og þríkvætt aBaBcDcD
Viðm.ártal:≈ 1900
Flokkur:Náttúruljóð
Hann Einbúi gnæfir svo langt yfir lágt,
að lyngtætlur stara’ á hann hissa
og kjarrviðinn sundlar að klifra svo hátt
og klettablóm táfestu missa.
Þó kalt hljóti nepjan að næða hans tind
svo nakinn, hann hopar þó hvergi.
Hann stendur sem hreystinnar heilaga mynd
og hreinskilnin, klöppuð úr bergi.