Vers á þrettánda* | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Vers á þrettánda*

Fyrsta ljóðlína:Vort er ljós og leiðarstjarna
Höfundur:Gunnar Pálsson
bls.244
Viðm.ártal:≈ 0
Vers á þrettánda
Tón: Hvenær viltu héðan kalla, herra J[esú].

Vort er ljós og leiðarstjarna,
ljúfi Jesú, orðið þitt,
fús vil eg því fylgja gjarna,
fótablysið það er mitt,
unn oss þér að offra nú
iðran, bæn með réttri trú
og jóla síðan hátíð halda
í himnaríki um aldir alda.