Hvöt | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Hvöt

Fyrsta ljóðlína:Saman, saman, tökum taktinn!
bls.798
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) ferkvætt AABBCCDD
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Saman, saman tökum taktinn!
taktinn,— það er aflið maktin,
gerir einn af mörgum marga,
mestu gungur hreystivarga,
lífgar dug og léttir þrautir,
lyftir hug og sléttar brautir,
sýnir öllum sama miðið,
sigrar vígið, opnar hliðið.
2.
Saman, saman tökum taktinn!
taktinn,— það er aflið, maktin,
þótt til fylgis fáum tugi,
framtak er ei það svo dugi,
verði talan tífalt meiri,
takast má að sumir heyri,
en ef talan tekur skriðinn
tuttuguföld, má heyra niðinn.
3.
Saman, saman tökum taktinn!
taktinn,— það er aflið maktin.
Ef vér landið enda milli
yngdum upp við taktsins snilli,
norðan frá þeim yztu öngum
út að syðstu Gróttutöngum:
Margt á Fróni mœtti batna,
meinin gróa, bölið sjatna.