SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3128)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
BrottfararkveðjaFyrsta ljóðlína:Ungur leist þú austursveita
Höfundur:Sigurður Guðmundsson Súluholti*
Heimild:Munnleg heimild. Viðm.ártal:≈ 2000
1. Ungur leist þú austursveitayfirbragð og fjallahring fæddur þar sem Feðgar heita fast við Eldhrauns mikla lyng.
2. Eystra fagurt var á vorinen vötnin þarna ströng og breið oftast bentu ævisporin ungu fólki á vesturleið.
3. Einnig hann í vesturveguvildi beina sinni ferð óx í verki ýmislegu – enda kempa traust að gerð.
4. Víst er hægt að vera í borgumog vinna sér til fremdar þar ganga í takt á glaumsins torgum – gleyma því sem áður var.
5. Guðgeir þráði´ að byrja að búaþví bjuggu fyrrum áar hans að gripum þar og grösum hlúa – gegna boði skaparans.
6. Bróðurpart úr Bitru keyptiþar búið höfðu kunnir menn. Á muni og hús þar mark sitt greipti þó misjafnt blási vindar enn.
7. Þó ökutækja flaumi fljótumflestir vilji sneiða hjá Guðgeir stóð á styrkum fótum við strauminn áratugi þrjá.
8. Aldnir rýma alltaf bekki– ungir stundum breyta til því stundum tekst og stundum ekki að standast lífsins harða byl.
9. Síðar þegar seld er jörðinsakna grannar víðst hvar. Allir líta opin skörðin – aðrir verða að koma þar.
10. Í Kópavogi grösin gróagaman þarna löngum er. – En ef þú birtist austur í Flóa áttu víst menn fagni þér. Athugagreinar
Guðgeir Sumarliðason í Bitru tók mikinn þátt í sönglífinu í Flóa og á Selfossi og söng á góðum stundum Betlikerlinguna eða Sverri konung með píanóundirleik. Á fullorðinsárum stundaði hann söngnám hjá Ingveldi Hjaltested í Tónlistarskóla Árnesinga. Hann flutti til Reykjavíkur þegar þau hjónin seldu Bitru um aldamótin 2000 og félagar hans í Söngkór Hraungerðisprestakalls buðu Guðgeiri á söngæfingu og sungu þar fyrir hann Brottfararkveðju með laginu Stenka Rasin. Sigurður skáld í Súluholti samdi textann af þessu tilefni.
|