Eymdaróður (sem sumir kalla Vanþakklæti) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Eymdaróður (sem sumir kalla Vanþakklæti)

Fyrsta ljóðlína:Margföld myndast þankabrotin
Heimild:Sunnanfari.
bls.1. árg. 10. tbl. (1892), bls. 96
Viðm.ártal:≈ 1825–1850
Tímasetning:1838
Flokkur:Ellikvæði

Skýringar

Ort síðasta árið er skáldið lifði.
1.
Margföld myndast þankabrotin,
="">merkja lætur sig
tíð köld; trufla heilsu notin
="">tök og sina rig;
veröld, vinum dægileg,
hvernig ertu orðin
="">ógeðfelld við mig?
2.
Mig þú mettir forðum daga
="">munað gjálífis;
stund sú stofnuð var til baga:
="">starði fjör á glys;
hlýt nú hvert af öðru slys,
því er á mér orðið
="">ekki spannar ris.
3.
Mín ár myglu svipuð grotni,
="">merkja lætur eitt:
ker, skiár, kistur, pottar brotni;
="">kaffi get ei veitt,
víntár, tóbak eða neitt;
rifna fornar flíkur,
="">fæða gefst óbreytt.
4.
Fátt mér farsælt þinnar eigu
="">fyrirhugað var;
seld er svuntu stærð á leigu
="">svía turnmeyjar;
skortir skímu yndis þar
í húsgangs hurðarlausu
="">holi Völundar.
5.
Kæla, kaföld, útsynningar,
="">krapa-élin grá,
bræla, brok og landnyrðingar
="">bitils ketti þjá,
sæla siglir garði hjá,
nytlaus bröltir belja
="">básnum mögur á.
6.
Þorri þrýstir fönn að skjánum,
="">þynnast heyin vor,
Norri nemur sál úr ánum,
="">nýta krummar gor,
dorri dreginn upp í bor
mun, ef nein ei geta
="">magnast lukku spor.
7.
Alt gýs inn um kofagreyin,
="">öfugt snúa þeir,
skyr frýs, skortir mjólkurteiginn,
="">skelf eg eins og reyr:
vatn ís; verður gull að eir,
ef konan köld að nafla
="">í kokkhúsinu deyr.
8.
Þó ár fá í mér golan tolli
="">ekki reiknast bót;
hár grá hlýja lítið kolli,
="">hremming sú er ljót;
brár á blinir eingin snót;
verstur vesalinga
="">vina forðast mót.
9.
Eg mun sæmri kjörum sinna,
="">sigra værðar tafn,
umbun öðlast þrauta minna
="">örn á steini jafn,
að grun eins og krumpinn hrafn
reka feigur fætur
="">í forlaganna stafn.


Athugagreinar

7.5 orðmyndin ís er sagnorð; vatnið ís; það leggur.