Í hafvillu 1895 | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Í hafvillu 1895

Fyrsta ljóðlína:Hér ég ligg í þrúðgri þoku
bls.155–156
Bragarháttur:Fjórar línur (tvíliður) OAOA
Viðm.ártal:≈ 1900
Tímasetning:1895
1.
Hér ég ligg í þrúðgri þoku
þjáður sjúkum hjartataugum
rambar súð á risa-öldum,
rekur nærri skerjahaugum.
2.
Hrollur bindur hug og vilja –
hrollur sextíu’ ára villu,
ævivillu, auðnuvillu,
undir rammri feigðarhillu. –
3.
Hví skal óttast skuggaskrípi?
Skelfstu eigi gamall maður!
Þér má senn á sama standa
sær og land og hver einn staður.
4.
Þráður lífs er þegar brostinn,
þér er lítið gagn að biðum.
enn til Drottins hertu hugann,
hann mun segja fyrir griðum.