Litli gimbill | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Litli gimbill

Fyrsta ljóðlína:Litli gimbill, lambið mitt
bls.42
Bragarháttur:Fjórar línur (tvíliður) aaBB
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Litli gimbill, lambið mitt,
labbaðu’ áfram greyið þitt.
Klingir hátt í bjöllum
fram eftir fjöllum.
2.
Litli gimbill, lambið mitt,
láttu vaxa skinnið þitt,
mamma vill fá það í feldinn
sem hún saumar á kveldin.
3.
Litli gimbill, lambið mitt,
láttu vaxa kjötið þitt.
Grunar ekki goðið,
seinna fer það í soðið.