Sumarkveðja | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sumarkveðja

Fyrsta ljóðlína:Ó, blessuð vertu, sumarsól
Höfundur:Páll Ólafsson
bls.159
Bragarháttur:Átta línur (o tvíliður) fer- og þríkvætt:aabbccdd
Viðm.ártal:≈ 1875
Flokkur:Náttúruljóð
Ó, blessuð vertu, sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
Nú fossar, lækir, unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár,
nú fellur heitur haddur þinn
á hvíta jökulkinn.

Þú klæðir allt í gull og glans,
þú glæðir allar vonir manns,
og hvar sem tárin kvika’ á kinn
þau kyssir geislinn þinn.
Þú fyllir dalinn fuglasöng,
nú finnast ekki dægrin löng,
og heim í sveitir sendirðu’ æ
úr suðri hlýjan blæ.

Þú frjóvgar, gleður, fæðir allt
um fjöll og dali’ og klæðir allt
og gangirðu’ undir gerist kalt,
þá grætur þig líka’ allt.
Ó, blessuð vertu, sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá!