Fátækur kom eg fyrst í heim | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Fátækur kom eg fyrst í heim

Fyrsta ljóðlína:Fátækur kom eg fyrst í heim
bls.373
Bragarháttur: Fjórar línur (aukin ferskeytla)
Viðm.ártal:≈ 1875
Tímasetning:1865

Skýringar

Kvæðið er hér birt eftir 4. útgáfu Snótar 1945 en hafði fyrst birst í 2. útgáfu Snótar 1865.
1.
Fátækur kom eg fyrst í heim,
fátækur hlýt eg þreyja;
fátækur síðan fell eg þeim
sem fátækur gjörði að deyja.
2.
Fátækir síður gjöra gott,
getur það fátækt eigi;
fátækur líður fremur spott
hjá fullríkum lífs á vegi.
3.
Fátækur var þó frelsarinn,
fátæka líta vildi;
fátæka græddi sérhvert sinn
sem þó við fátækt skildi.
4.
Fátækum gefst ei frelsi neitt,
fátækur neyð má kanna;
fátækum er ei virðing veitt,
vill það mín fátækt sanna.