Gísli Konráðsson | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Gísli Konráðsson

Fyrsta ljóðlína:Nú er hinn frægi / fræðaþulur
bls.53
Bragarháttur:Ljóðaháttur
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Nú er hinn frægi
fræðaþulur
lagstur lík að sköpum,
hnigin er skálds
úr hauka kleifum*
ljóðharpa lúin.
2.
Geymir lands saga
grepps* minningu
djúpt í demant skráða,
og öldungar leyfa
yngri tíma
fræðirit ins fallna.


Athugagreinar

1.5 hauka kleif: hönd.
2.2 greppur: skáld, maður.