Til herra Páls Gaimard | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Til herra Páls Gaimard

Fyrsta ljóðlína:Þú stóðst á tindi Heklu hám
Viðm.ártal:≈ 1850
Tímasetning:1839

Skýringar

Eiginhandarrit er varðveitt í Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn: Ny kgl. samling 3282 4to.
Kvæðið er varðveitt í sérprenti „Til Herra Páls Gaimard I samsæti Islendinga i Kaupmannahöfn. Þann 16. Janúarí 1839“.
Einnig prentað í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847.
1.
Þú stóðst á tindi Heklu hám
og horfðir yfir landið fríða,
þar sem um grænar grundir líða
skínandi ár að ægi blám;
en Loki bundinn beið í gjótum
bjargstuddum undir jökulrótum –
þótti þér ekki Ísland þá
yfirbragðsmikið til að sjá?
2.
Þú reiðst um fagran fjalladal
á fáki vökrum götu slétta,
þar sem við búann brattra kletta
æðandi fossar eiga tal,
þar sem að una hátt í hlíðum
hjarðir á beit með lagði síðum –
þótti þér ekki Ísland þá
íbúum sínum skemmtan ljá?
3.
Þú komst á breiðan brunageim
við bjarta vatnið fiskisæla,
þar sem við áður áttum hæla
frístjórnarþingi frægu’ um heim;
nú er þar þrotin þyrping tjalda,
þögult og dapurt hraunið kalda –
þótti þér ekki Ísland þá
alþingi svipt með hrellda brá?
4.
Nú heilsar þér á Hafnarslóð
heiman af Fróni vinaflokkur;
við vitum glöggt að anntu okkur,
frakkneskur maður frjálsri þjóð;
því andinn lifir æ hinn sami
þótt afl og þroska nauðir lami.
Menntanna brunni að bergja á
besta skal okkur hressing ljá.
5.
Vísindin efla alla dáð,
orkuna styrkja, viljann hvessa,
vonina glæða, hugann hressa,
farsældum vefja lýð og láð;
tífaldar þakkir því ber færa
þeim sem að guðdómseldinn skæra
vakið og glætt og verndað fá
viskunnar helga fjalli á.
6.
Þvílíkar færum þakkir vér
þér sem úr fylgsnum náttúrunnar
gersemar, áður aldrei kunnar,
með óþreytanda afli ber.
Heill sé þér, Páll! og heiður bestur!
hjá oss sat aldrei kærri gestur.
Alvaldur greiði æ þinn stig!
Ísland skal lengi muna þig.