Minningarvísur fluttar við greftrun beina Reynistaðarbræðra 1846 | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Minningarvísur fluttar við greftrun beina Reynistaðarbræðra 1846

Fyrsta ljóðlína:Hátíðleg sést og heyrist hér
Bragarháttur:Stafhent eða stafhenda (stuðlalag)
Viðm.ártal:≈ 1850
Tímasetning:1846
1.
Hátíðleg sést og heyrist hér,
hending hvort eða forlög er,
tveggja bræðra því bein úr jörð
blessast nú undir helgum svörð.
2.
Bjarni og Einar eru það,
arfar Halldórs á Reynistað,
í blóma dánir aldurs síns,
afsprengi lögmanns Vídalíns.
3.
Eftir sextíu ár og sex
yfir þeim jarðar haddur vex.
Dárlegt var þeirra að dylja hel,
dysjaðir fyrri á eyðimel.
4.
Hafi það verið hending ein,
hér að leidd eru þeirra bein,
engu að síður það sjáum vér,
svo getur leyndin orðið ber.
5.
En ef hér forlög áttu stað,
ekkert bragð mátti hindra það,
feðraleifum þeir fúni með;
frændræknin gat um þetta séð.
6.
Ofan sáð nás í ekrurnar
upprisudagsins blómgunar
bíði hér vegs í værri bið
visin sáðkorn að feðra hlið.
7.
Alvalda Drottins að umsjá
aðal-dýrð-skrauti búast þá.
Þar kemur aldrei harmahaust
heldur gleði vor endalaust.