Kvæði af herra Birni og Ingigerði | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kvæði af herra Birni og Ingigerði

Fyrsta ljóðlína:Herra Björn og Ingigerður
Viðm.ártal:≈ 0
Flokkur:Sagnadansar
1.
Herra Björn og Ingigerður
töluðu þau sér gaman;
en í hæga loftinu
lágu þau bæði saman.
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
2.
„Hvörninn skaltu, Ingigerður,
una við þitt líf
ef eg fer í önur lönd
að fastna mér víf?“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
3.
„Annað hvort mun eg
lifa eða dey
þó þú farir í önnur lönd
og fastnir þér mey.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
4.
Af því spurði hún Ingigerður
herra Björn þá:
„Hvör er nú sú voldugleg
að þinn stár hugurinn á?“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
5.
„Engilborg heitir sú,
kóngsins barn,
hana vilda eg vefja
á mínum arm.·
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
6.
Að því spurði hún Ingigerður
herra Björn sinn:
„Nær á eg að bera
mín gulli búin skinn“?
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
7.
„Á morgun skaltu bera
þín gulli búin skinn,
ganga so glaðlega
fyrir brúðirnar inn.
8.
Ganga so glaðlega
fyrir brúðirnar inn,
nefnast frúin Margrét
systir mín.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
9.
Troðið var þar organ
og slegið symfón
þá hún ríka Engilborg
ríður sig í tún.
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
10.
Silkið og pellið
var á bekkinn breitt
þá hún ríka Engilborg
var til sætis leidd.
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
11.
Að því spurði hún Engilborg
herra Björn sinn:
„Hvör skenkir mjöðinn
og það skíra vín?“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
12.
„Það er hún frúin Margrét
systir mín,
hún skenkir mjöðinn
og það skíra vín.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
13.
„Sé hún það frúin Margrét
systir þín
því falla henni so
tárin á kinn?
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
14.
„Því falla henni
tárin á kinn,
hún þreyr eftir
festarmanninn sinn.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
15.
„Þreyi hún eftir
festarmanninn sinn
giftu hana Knúti kóngi
kæra bróður mín.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
16.
„Ég get ekki sannar
sagt þér í frá,
Knút bróður þinn
vill hún ekki sjá.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
17.
Síðan aftnar ,
rökkur fellur á,
herra Björn vill sig
til sængurinnar gá.
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
18.
Hún dró af þeim
gulli búinn skó,
óx henni harmur
um hjartað nóg.
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
19.
Hún breiddi yfir þau
það hvíta lín:
„Sofi þið með yndi,
hreppið aldrei pín.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
20.
Seinast breiddi
hún pellið á:
„Sofið þið með yndi,
hreppið aldrei þrá.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
21.
Að því spurði hún Engilborg
herra Björn þá:
„Hver er nú so voldugleg
að pellið breiðir á?“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
22.
„Það er hún frúin Margrét
systir mín,
hún breiðir pellið
og það er hvíta lín.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
23.
„Sé hún það frúin Margrét
systir þín
því falla henni
tárin á kinn?“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
24.
„So falla henni
tárin á kinn
sem hún hafi eitthvört sinn verið
unnustan þín.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
25.
„Eg get ekki dulið þig
fyrir vísdómnum þín.
Það er hún frúin Ingigerður
festarmærin mín.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
26.
Hún gekk sig til svefnstofu,
heyrði að hún kvað:
„Hvort gjörir ríka frúin
sefur eða vakir?“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
27.
Svaraði sú
hin ríka frú:
„Sofið hef eg til þessa
en vaki eg nú.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
28.
Upp stóð hún Engilborg
af herra Bjarnar armi:
„Leggstu niður, Ingigerður,
linaðu þínum harmi.
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
29.
Allt það rauðagull
sem eg flutta með mér
það skal eg, frúin Ingigerður,
láta gefa þér.
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
30.
Það skal eg, Ingigerður,
láta gefa þér
og yndið hans
herra Bjarnar með.
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
31.
En so var hún Engilborg
úr höllinni út,
ekki náði hann herra Björn
í hennar skikkjuskaut.
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
32.
Þetta talar hún Engilborg,
hún rið sig undan tjaldi:
„Hvört barn lifir hér
í vors herra valdi.
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
33.
„Sjö hef eg mönnunum
verið gift
en allar hafa mig eljurnar
yndinu svipt.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.
*34.
Þetta talar hún Engilborg,
hún reið sig úr hliði:
„Hvört barn lifir hér
í vors herra friði.“
Sá er enginn glaður eftir annan þreyr.

(Íslenzk fornkvæði I, bls. 28–34; AM 147 8vo, bl. 14r–16v)
*33.
erindi vantar í AM 147 8vo og er tekið eftir Add. 11.177 og Ny kgl. sml. 1141 fol og JS 405 4to.