SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3126)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Pontus rímur 10Pontus rímur – tíunda rímaBálkur:Pontus rímur
Fyrsta ljóðlína:Fús er út hinn þrifni þustur
bls.112–123
Viðm.ártal:≈ 1575
Flokkur:Rímur
Tíunda ríma
Ferskeytt
1. Fús er út hinn þrifni þustur,þagnar leystur bandi; Fjölnirs skeiða gríða gustur gengur af hyggju landi.
2. Mundi eg tíunda meyjum óðmjúkum orðum slyngja, ef eg hefði allt eins hljóð og Orpheus að syngja.
3. Pallas veiti lið og lánlyndi mannsins spekja, hjarðar guð, sem heitir Pán, af höfga upp að vekja.
4. Bólginn hans að blási kjafturbelgja í pípu kalda, so hann Mídas eyrum aftur opnum mætti halda.
5. Stentóríus með stríða röddsterkt skal ópið herð; mætti þussa gabbi glödd galda sveitin verða.
6. Fyrst Appolló hörpu hljóðhæða og gabba flester, þá mun skylt að skemmta þjóð skvaldri því, sem vest er.
7. Cerberus þeim syngi reiðursína rödd í eyra, sem gleðin er og glaumur leiður og gaman mega aldri heyra.
8. Aðra fá ei ósk af méreftir mínum vanda en plagaðir og píndir verr fyrir Plútons dyrum standa.
9. Jungfrú, ætla eg þetta þérþenna flokk að vinna, á meðan í orðum áset mér af öðrum toga að spinna.
10. Vér inntum heiðinna ævispjöllaldri glöggt af munni, hvörsu raskast friðarins föll og flúði hvör sem kunni.
11. Lesum af þeim lengra meir,sem lífi halda náðu; hverfa úr sögunni höldar þeir, sem Heljar stíginn tráðu.
12. Verð eg segja virðum frá,er vörgum bráðir afla, hestar óðu að hnjánum þá hræjum drifna skafla.
13. Friðsöm dýrin fengu náð,fuglinn meinlaus hlakkar, meðan vísirs varma bráð varga sveitin smakkar.
14. Flokkur hinn heiðni fellur þar,fargar orðstír góðum; ekki á lífi eftir var einn af heiðnum þjóðum.
15. Kóngsson reið með kappa sveit,kom þar skeiðir lágu, hyggst að fara í hefndar leit hinna, er fangna sáu.
16. Heiðnir stukku hauðri af,hælis leita kunna, sjálfir steyptu sér á kaf og sukku niður til grunna.
17. Kappar leystu kristna menn,kvalda af písl og nauðum, sára gjörðu að græða senn og gröft að veita dauðum.
18. Pontus rétt með reiðisvipróa lét til skeiða, kanna vill nú Códrus skip og kemur á drekann breiða.
19. Það var skip með Skrímnirs vessskorið á ýmsar lundir; leit hann aldri líkann þess liðnar ævistundir.
20. Lítt trú eg þessi laufa Týrliðinu heiðna vægi; síðan sprang á sjóvar dýr sonur kóngs hinn frægi.
21. Tókst þar brátt hið mesta morð;mann þeir öngan spörðu; Pontus hjó þá brátt fyrir borð bragna þá, sem vörðu.
22. Pontus einum bragna bauð,beint var hræðslu sólginn, sér að vísa allan auð, sem á var skeiðum fólginn.
23. Trauður gjörir það tiginn bað,tjáir ei við að fresta, sýnir honum í sögðum stað silfur og gullið mesta.
24. Gripi og háfur góðar fann,gæddar hirzlum vöndum, slíkan auð ei heyrði hann hvörgi á Norðurlöndum.
25. Kristna lét hann kappa þann,kunni latínu ræða; síðan lét af sárum hann sjálfur Pontus græða.
26. Códrus hafði um hauður og hléhrausta kónga slegið, árin tólf það ofsafé úr ýmsum löndum dregið.
27. Þjáð skyldi ekki þvílík nauðþann í vöku og blundi, hefði vitað hvör þann auð hreppa um síðir mundi.
28. Orðtak það hjá ýtum gengur,ef ágirnd fylgir magni, örfum hans að illur fengur aldrei komi að gagni.
29. Skildi tal með skötnum þeimskorti ei prís né æra; féð allt lét til hallar heim herra Pontus færa.
30. Heiður jókst á hjörva fund,hans er líkinn valla; nú þarf ekki niflungs kund nokkur snauðan kalla.
31. Síðan endast styrjöld stór;stýrðu kristnir lukku; herinn heim til hallar fór og heiðinna erfi drukku.
32. Fólkið gjörðist furðufátt;fagnað ei má dvína; kóngur þakkar herrum hátt hjástoð alla sína
33. Þá var tal með tignum flestaf toga slíkum spunnið, hvörjir verkin hreysti mest hefðu í slaginu unnið.
34. Frægð af Ponto fyrstum rís,fremd og alls kyns prýði; honum lögðu heiður og prís helzt yfir aðra lýði.
35. Guðfreyr þá var greindur næstgildum stillirs arfa; Andri af Lator ekki smæst afrek þótti starfa.
36. Vernarð greindu virðar þáværi hinn mesti kappi; hermir sagan herra sá hinum nærri stappi.
37. Enginn þeirra afrek máorðunum sínum glósa; heiðurinn veittist herrum þá, sem helzt þeir vildu kjósa.
38. Átta daga öllum þeimekki bar til hryggða; síðan riðu herrar heim, hvör til sinna byggða.
39. Ferðin tókst þeim fullvel greið;fylgdi Pontus mengi; síðan hverfur heim á leið hann með röskva drengi.
40. Pontus kætti kóngsins þjóð,köppum virtist furði; dóttir kóngsins dygg og rjóð dýran sigurinn spurði.
41. Einkum fékk hún alla spurtathöfn riddarans sterka, fremd og prýði, fegurð og kurt og fjölda snilldar verka.
42. Þetta gjörði göfugri frúgleði í hjartað magna; hoskust býst við hringa brú honum með blíðu fagna.
43. Þegar kurtis kemst á snoðum komu riddarans stranga, sendi honum blíðust boð og bað hann til sín ganga.
44. Pontus verkið þetta þráttþá var fús að vinna; kemur tíðum kóngsson brátt kléna jungfrú finna.
45. Strax á móti meyjan gekkmætum hilmirs kundi, alla gleði og yndi fékk ung af þeirra fundi.
46. Jungfrú guði þakkar þáþennan heiður og sóma allan þann, sem innter frá; af honum flestir róma.
47. „Hæstan fögnuð hjartans þelhefur af þessu fengið, að yður hefur að óskum vel allt í stríðinu gengið.
48. „Náðuga frá,“ að kóngsson kvað,„kyns það margan blekki; flestir lofa lýðir það, sem lítt er vert eða ekki.
49. Eg vil þakka yðar náðmeð auðmýkt, jungfrú bjarta, heiður, prís sem dygð og dáð, dýran mér af hjarta.
50. Allt það bezta innast máog eg kann fremst að megna; skrumlaust öllum skýri eg frá; skeður það yðar vegna.
51. Fremd og prýði, fegurð og skart,fús vil eg það játa, yðar sómi og ærlig art öll mér lízt í máta.„
52. „Mitt hefur hjarta manndóms hrærzt,“mælti fæðir ljóna, „yður, jungfrú, allra kærst með æru og dygð að þjóna.
53. Gefi mér þar til gæzku og náðguð af sinni mildi yður þjóna af æðstri dáð, eins og eg kjósa vildi.„
54. „Kæri vin,“ að kurtis frúklén við Pontus sagði, „við yður held eg alla trú, sem okkar á millum lagði.
55. utan hugsi ódygð méreflaust nokkra sýna; við það skulu að vísu þér vináttu minni týna.„
56. „Yðar er ætlan ekki fín,“enn réð Pontus róma; „hafið ei þenna hug til mín, sem hæfir ei okkar sóma.„
57. Þessi og önnur þvílík orðþeirra fóru á milli; kvaddi síðan skikkju skorð; og skildu so með snilli.
58. Sjálf þar eftir svinnust beið;sorgum hrinda brúðir; hilmirs syni heim á leið hofmenn fylgja prúðir.
59. Þegar liðið var langt í frá,letrin oss það skýra, kóngurinn náði krankleik fá, kunni ei ríkjum stýra.
60. Hertuga, greifa og göfuga menngramur til sín kallar; þessir flýta síðan senn sinni ferð til hallar.
61. Ráðgast um við dýra drótt,dugir ei þanninn standi, öllum greinir sína sótt, segir, hvör á er vandi.
62. „Vandhæfi á virðist mér,sem vora tign má prýða; veljið einn að vísu þér, sem viljið fúsir hlýða.
63. Herrar segja hann muni sjáhæstar þarfir ríki. „Oss er enginn annar hjá, sem er hans Pontus líki.
64. Vér skulum þar fyrir velja hannfyrir vora nauðsyn bráða, af því kóngsson allvel kann öllu landi að ráða.
65. Þessu játar þá til sannsþengill fús af mildi: „Öngan heldur innan lands eg annan kjósa vildi.„
66. Pontus hermir herrum þá,að hafi sig misgáð illa: „Ungur er eg yður í hjá alla hluti að stilla.„
67. Ekki tjáði orðum neittundanfæri að skýra; hvört honum var það ljúft eða leitt, löndum varð að stýra.
68. Prís og heiður Pontus vann,prýða siðirnir góðir; þar með elska og óttast hann allar landsins þjóðir.
69. Hollur var honum hilmirs lýðurhlýðni og sæmd að gjalda; og so hvað hann brögnu býður búinn var hvör að halda.
70. Ósamþykki eyddi hannog efldi á meðal ríkja; og hann vissi enginn mann út af lögunum víkja.
71. Allir forþént fengu laun,forðast styrjöld alla; þar fyrir hann í réttri raun ráðvandan má kalla.
72. Hryggva gleður, en saddi svangt,sjálfur nakta klæddi, hjálpar aumum, rétti rangt, rænta peningum gæddi.
73. Guðsþjónustu gjörði mestgöfugur Pontus rækja; landsins mun því liðið flest, hann langt að ráðum sækja.
74. Kvendið allt af kóngsson spyr,kveikist sárri pínu; fyrir hann ástar heitan byr hún hafði í brjósti sínu.
75. Hvör bað guð í hjarta sérhann sinn verða mætti, en hann þeirra æ þess verr angrið miður bætti.
76. Elskuteiknin allar þæróspart frammi létu; ást af Ponto engin fær, oftliga fyrir það grétu.
77. Látum frúnum stríð og styggðstanda í þeirra valdi, greinum hitt, að hatur og lygð honum kom fyrst að gjaldi.
78. Heimsins blíða blekkir þáí beztu virðing standa, heiðri og löndum falla frá í fár og stóran vanda.
79. Kunna vænlig vináttuhótað vísu margan blekkja; því er vant um veganna mót vini og frændur þekkja.
80. Hlaðinni skeið er heim á leiðað halda bezt í tíma; fyrðum sneið að færist greið; falli tíunda ríma. |