SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3126)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Pontus rímur 8Pontus rímur – áttunda rímaBálkur:Pontus rímur
Fyrsta ljóðlína:Eg finn nú, að öngum gast
bls.87–99
Viðm.ártal:≈ 1575
Flokkur:Rímur
Áttunda ríma Ferskeytt
1. Eg finn nú, að öngum gastóðurinn sá eg felldi, því skal Bölverks belginn fast blása að slokknum eldi.
2. Vilji nærast neisti sá,nokkra jungfrú verma hrindi í burt úr hjarta þrá, en huginn af kæti ferma.
3. Sérhvört er það steypir eður styður,stynja sárt eða dilla, byggja upp eða brjóta niður, blessa eður mæla illa.
4. Bið eg mitt heyra meyjar mál,mansöng læt eg rigna; mætti hjörtun hörð sem stál í hróðrar eldi digna.
5. Yfir stár nú óárs tíð,æski eg bót á seinni, mitt vill ekki mansöngs smíð meyju þóknast neinni.
6. Á mínum óð er engin hind,enn þó við megi sæma; hatur og elska eruð bæði blind beint um nokkuð dæma.
7. Jafnan að mér þankast það,því er eg hér við bundinn, að ekki finni einhvör að, aldri mun sá fundinn.
8. Mig þó kunni menntin núog mælsku hér til bresta, viljann tak fyrir verkið, frú, og virð so til hins bezta.
9. Ber að líða mey við mann,þó misgáningur blekki, þar sem vöndur véla kann að vísu finnast ekki.
10. Þó í vísum víki frávegi skálda sönnum vilji góður virðast á vel fyrir öllum mönnum.
11. Lystir áfram lengra skeiðloksins mig að renna, so eg finni fyrri leið flokkinn auka þenna.
12. Rímu frá eg fyrri gekker fundi lýkur ströngum, þar sem kóngsson frægur fékk fylli vargi svöngum.
13. Pontus segir sigurinn sinnsjálfum guði að kenna; kom hann fús í kirkju inn og kraup fyrir heiðurinn þenna.
14. Þakkar guði í þessum staðþá sem mjúkast kunni; um meira styrk að blíður bað bæði af hjarta og munni.
15. Í fyrstu offrar fylkir fríðurfórnir sínar allar, stígur á bak og burtu ríður að boða lið til hallar.
16. Pontus strax að gengur greittað göfugum hnekkir styrjar; kveðjur fékk hann kærar veitt kóngi sem honum byrjar.
17. Kóngur segir af kátum móðvið kappann gylltra hlífa, að hann muni verja hoska þjóð og heiðna burtu drífa.
18. Meðan að eykur köppum kurrum kosti að velja sára, ljósa hitti lofðungs bur lindi Drúpnirs tára.
19. Strax að kom í kvenna liðkveitir Fýris sáða, vænan kvöddu vísirs nið vefjur silkiþráða.
20. Allar báðu að óskum hansævin skyldi anga, kváð; ei slíkan ljóma lands sem lestir harðra spanga.
21. „Fremd og heiður, fegurð og kurt,fæðu að veita hrafni, hvar sem höfum um heiminn spurt, hans finnist ekki jafni.“
22. Vær skulum láta liljur gullslundinn sverða prísa, meðan gjörum grein til fulls á grimmu stríði að lýsa.
23. Kóngur biður, að herra hvörhans til fundar sæki; hvör það heyrði hringa bör og hilmirs boðskap ræki.
24. Til hallar kóngs að fjöldi ferfljótt að leyfi gefnu; síðan leiddi hoskan her hann á ráða stefnu.
25. Biður þá gefa beztu ráðbrátt í slíkum vanda: „So vér fangum frið og náð og frelsan vorra landa.“
26. Flestum byggði hræðsla í hugsig héldu meir en feiga; öllum tók að aka í bug ergi hjartans deiga.
27. Pontus þagði herrum hjá,er hræðslan tók að stanza; enginn kunni kappi þá kóngi neinu að anza.
28. Kóngur biður buðlungs niðbeztu ráð að kenna, segir: „Þess mun þurfa við, ef þjóðir hlífar spenna.“
29. Pontus segist skynja skilskjótra kosta tveggja: „Þó eg sé ærið ungur til öðrum ráð að leggja,
30. eg er fús á fylkirs boðað fylla af öllum mætti, svinnum veita sanna stoð og segja, hvað mér þætti.“
31. „Náðugi herra, hlýði þér,“kvað hilmirs sonurinn dýri, „virðið ei til illsku mér, þó ófrótt ráð eg skýri.
32. Hræðist aldi heiðna drótt,þó hafi þeir ótal þegna; guð kann sigri skipta skjótt, skulu því allir gegna.
33. Viljann ekki vantar hannað vernda sína í friði, þeirra fjölda fella kann með fáum af voru liði.
34. Börnum sínum guð mun gagngjöra til meiri þarfa, hjálp að veita, hreysti og magn, hvað sem skulu starfa.
35. Kristna alla kemur það við,krenkist trúin ella; þeim er oss skylt að leggja lið og lýðinn heiðna fella.
36. Ef það litist yðar náðog svo þeim hér standa, skal það mitt hið skjóta ráð að skrifa til allra landa.
37. Hér með biðja um hjálp og stoðherra og första alla; látið ganga bráðast boð til borgar saman að kalla.
38. Látið fæðu færa í slot,að fjöldi megi þar gista, svo enginn spyrji þaðan þrot þeirra neinna vista.“
39. Sitt réð enda síðan talsvinnur fæðir ylgja; þá vill flestallt þegna val þessu ráði fylgja.
40. Hilmir lætur hernum bráttí herför þessa bjóða; dubba sig til dag og nátt í dreyra sverðin rjóða.
41. Ýtar heyrðu um eina stundörva drífu boðna; herinn þeysti á hilmirs fund með hjálma gulli roðna.
42. Til Vanis kemur múgi mannser mátti orðlof þiggja; enginn dirfðist innan lands eftir heima liggja.
43. Æptu börn og mæður, menn,meyjar kvöldust sorgum; turnar hljóða, en tygjast senn, tæmdist hús í borgum.
44. Kóngur spyr um langa leiðtil liðs, sem von á átti; hann á móti hernum reið og höndlar bezt sem mátti.
45. Þeim hann fylgdi strax í staðstoltar náðir þiggja; hér ber fleira höndum að en hæfi í kyrrðum liggja.
46. Þúsund fjögur þá voru sendþegna heiðna telja; þegar för er þessi end, þenkja ekki að dvelja.
47. Þá var skipt í fjóra fæstflokka hernum öllum; þar má líta ljómann glæst með lið á grænum völlum.
48. Flokki einn með fagran geirfylkir stjórna vildi; gram skulu fylgja greifar tveir, gylltum prýddir skildi.
49. Öruggir með eggjar bláráttu að stýra borgum; þessir kunna ei forðast fár né firra hjartað sorgum.
50. León stýrði og Avel enn,urnis þaktir svelli, þeir skulu hjálpa hreystimenn hnignum kóngi af elli.
51. Öðrum flokki Ragnar réðog Rollant af Toll hinn fríði, Galle af Victor var þeim með, vanir í hörðu stríði;
52. Pontus, sá sem prýddi skrautog prís til allra dáða; með honum sjálfur Herlant hlaut hinum þriðja ráða.
53. Vilhjálm af Roskis var þeim nær,sem velti heiðnum mörgum; Andri af Lator frækinn fær fylli soltnum vörgum.
54. Guðfreyr af Leysing, listarmann,laufa kann að beita, Lénarð af Meyland líka hann að lauga í Fófnirs sveita.
55. Enginn vissi í veröld sennvera þeirra nóta; í stríði lærðu stoltar menn stöng í skjöldu að brjóta.
56. Herför var sú heiman gjörð,höfðu útreið snöggva; þessir fýsast þurra jörð þussa tárum döggva.
57. Jörðin skalf, en skriðna fjöll,skógar kvíða og grundir, grétu ský, en tárast tröll, tók í björgum undir.
58. Grenjar vargur, grætur blauður,guðinn styrjar blakkar, sortnar sól, en dragnar dauður, dísir myrkurs flakka.
59. Þar næst ríða rökkur og dag,rétta nótt og morgna; hestar áttu illsku plag, aldri af sveita þorna.
60. Öðling sér um eina náttað þeim ríða marga rétta leið með rausnar mátt riddara þeim að bjarga.
61. Höfðu þessir hundruð þrenn,á hestum ekki seinir; valla sáust vænni menn vopnum skrýðast neinir.
62. Reinall af Selle riddari einnog Róðbert af Campaigni, Hans af Pólín, heyrði ei neinn hans hjarta í stríði digni.
63. Kóngur gleðst, er kenndi þá,kvaddi hýru máli; þeir munu hefnast heiðnum á og hörðu beita stáli.
64. Að morgni kóngur mælti hátt;máttu allir heyra: „Vér höfum lið það vænsta brátt að vekja heiðnum dreyra.
65. Stendur vor hin tigna trúmeð trausti yðar handa; sýnið dáð og dugnað nú með drengskap vorra landa!
66. Haldið yðar fylking fast,farið svo vopnum beita, utan þurfi oss með hast aðra liðsemd veita.“
67. Pontus býður svinnum svörsín í þessu rækja; á alla skyldi heiðna hvör heim á óvart sækja.
68. „Annars munum vér ekki grandí öðrum ráðum finna; þeir munu bæði lýði og land loks um síðir vinna.“
69. Þetta öllum þótti ráð,þá var fylkt á grundu; landsmenn höfðu litla náð, lítt við hag sinn undu.
70. Tunglið skein, en veður er vænt,vellir þaktir tjöldum; af hestagný að hauðrið grænt hafs var líkast öldum.
71. Þar með stóðu þeirra tjöldþykkt um völlu alla; heyrði þá fyrir helgihöld horn fyrir eyrum gjalla.
72. Heiðnir vakna um síðir seint,sveitin út réð ganga; hjartað skalf, en búkurinn beint brauzt um stund so langa.
73. Varð á þeirra veizlu spjöll,víl í hug sér töldu; síðan heiðna sveitin öll sig í myrkrum földu.
74. Hlaupa um síð í Hrumnings voð,hljóða trumbur margar; fýsast þá í þetta boð að þeysa allir vargar.
75. Eyðir vendi orma skerseinn fyrir fólki snjöllu; flokkum renndi fjöldi hers fram á græna völlu.
76. Pontus kóngsson kvaddi hljóðskappa sveit á grundu; „Efni birti eg öllum góðs yður á sömu stundu.
77. Vér erum hér, sem vel má sjá,hjá vorum kóngi og herra; kosti tvo skal telja þá; týnið hvörugum þeirra.
78. Á guð þér setjið trú og traust,en trautt á liðsmenn marga; ótæpt mun hann efalaust öllum sínum bjarga.
79. Það annað skulu þér ást til fjárúr yðar hjarta keyra; hugsa framar held eg skárr heiðnum vekja dreyra.
80. Fólkið leysum fangað vérfrá alls kyns sorg og mæði; aðallinn hefur allur hér af þeim mat og klæði.
81. Vér skulum slást fyrir vora trúog voga á hættu stranga; öllum mun oss ætlan sú að ósk og vilja ganga.
82. Öngum vinnst þann nokkurn neinnniður með öllu kefja, sem ætlar drottinn dýr og hreinn dásamliga að hefja.
83. Í nafni guðs skal nýtur hvörnokkrar frægðir byrja; látum heiðnum högg óspör, so heimurinn megi það spyrja.
84. Ríðum fram og herðum hug;hvör skal annan eggja; múgurinn fylgi, merkja flug þá mun af spjótum leggja.“
85. Vökvast blóð, en valurinn hleðst,vænir skildir klofna, vargur gól, en vítin neðst veizlu heiðnum stofna.
86. Hér mun verða á bragnum brot;ber hann öllum rækja; vara haft og vísna þrot vill að höndum sækja.
87. Tak að þér og burtu berblindast orða sálda; í hróðrar ver að hnekkt er mér hinna fyrri skálda.
88. Jungfrú kennd til kvæða vend,eg kann ei bregða vanda; nú er end og átta send yður frá mér til handa. |