Ein alvarleg viðurkenning mannsins í hvörju andlegu stríði gengur stopult | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Ein alvarleg viðurkenning mannsins í hvörju andlegu stríði gengur stopult

Fyrsta ljóðlína:Minn er óður orðinn margur
bls.276
Bragarháttur:Fimm línur (tvíliður) fer- og fimmkvætt ABABO
Viðm.ártal:≈ 1600
Tímasetning:1612
1.
Minn er óður orðinn margur,
eftir því hef eg stundað lengi,
að því heldur holdsins kargur,
heimskur vilji á burtu gengi.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
2.
Um tíma fjóra talaði eg fyrri,
teygja munu þeir ræðu mína,
á meðan að hvílist maðurinn kyrri,
missir sorg og ánauð sína.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
3.
Oft er mínum innra manni
ánauð veitt og þrautir harðar,
glys að elska, Guð þó banni,
en gleyma þín sem mestu varðar.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
4.
Ligg eg flatur lágt á jörðu,
líkama hef þungan fengið,
á eg að standa í stríði hörðu,
stopult hefur mér þetta gengið.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
5.
Sækir að með sínu kappi
Satan eftir gömlum vanda,
að yrða eg sviptur öllu happi
er mér Jesús vann til handa.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
6.
Undir sig hinn leiði lokkar
liðsmenn þá sem mér eru kærir,
verður það í orustu okkar
oftast það að hann mig særir.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
7.
Mín náttúra með hönum stendur
og mér vill öngva liðsemd bjóða,
er því hugurinn oft um vendur
að ekki náir því enu góða.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
8.
Undir Satans höggin hörðu
hún heldur mér með kænsku valdi,
þó Drottinn á mér vakt og vörðu
viljagóður löngum haldi.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
9.
Annan hefur hann að sér dregið
undan mér til margra tála,
að leiðum heimi liðsemd þegið
og lokkað hann til fylgis mála.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
10.
Dirfð og heimsku þýð eg þetta,
það er nú minn fyrsti tími,
að eg lét mig svo óvin pretta
eftir sér og heimsins slími.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
11.
Annar tíminn hóf sig hraður,
hræðast tók eg syndirnar,
þó í hvörju gamni glaður,
gast mér ekki að þeim par.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
12.
Svikull maður í syndum herður,
sálarlaus í holdi glaður,
í öðrum heimi einkis verður
en þó hér einn snilldar maður.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
13.
Nú með þessum hræðslu hætti
hugsaði eg eftir synda launum.
Eilífð sú sem ógna mætti,
að aldrei verður bót á raunum.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
14.
Sú mun ógn og engin meiri,
illan dauða og syndir hræðast.
Sankti Pétur og síðan fleiri
sönnuðu það og urðu að græðast.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
15.
Sá þriðji tími hófst til handa
og hann er nú um þessar stundir,
andlegt stríð sem yfir mun standa
ýmist vinna eður liggja undir.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
16.
Sanna eg það sem segir ritning,
sjö sinnum á deginum freistur,
fellur maður og fær þá litning
en fullvel uppi hvört sinn reistur.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
17.
Föðursins ást og eftirlæti
undirstend eg nú sem tíðast
síðan á krossi sonurinn sæti
sínu blóði dreifði víðast.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
18.
Hvað kom til, minn faðirinn frægi,
þú felldir heift og reiði þína,
og ert mér þessi herrann hægi,
hvörja stund í nauðsyn mína.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
19.
Hvað kom til, minn Guðs son góður,
gjarnan vilda eg lof þitt skýra,
að þú hófst af helgri móður,
hold og blóð með auðmýkt dýra.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
20.
Hvað kom til, minn skaparinn skíri,
að skynjað fæ eg ei gæskur þínar,
að svo píndist sonurinn dýri,
syndalaus fyrir gjörðir mínar.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
21.
Það kom til þín miskunn mátti
mína vesöld ekki líða.
Þú vildir þinn þrællinn sátti
með þínum syni hann skyldi stríða.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
22.
Þetta stríð hafa helgir haldið,
hér til finn eg ritning gamla,
en eg fæ þeirra vopnum valdið
varla nú því margt vill hamla.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
23.
Fjórða vantar og finn eg þetta
sem fullkomleikans tíminn heitir,
áður en náir á dauðinn detta,
Drottinn mér hann einninn veitir.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.
24.
Það ertu einn, eg allra hæstan greini.
Syndir vorar bar á burt,
af blíðum hef eg það föðurnum spurt.
Lofi þig allir, lifandi Drottinn hreini.