Friðbjörn Björnsson í Staðartungu | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Friðbjörn Björnsson í Staðartungu 1873–1945

SEX LAUSAVÍSUR
Friðbjörn var fæddur á Saurbæ í Hörgárdal, sonur Björns Jónssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur. Foreldrar Friðbjarnar bjuggu lengi á Barká og áttu fjölda barna. Friðbjörn kvæntist Stefaníu Jónsdóttur úr Myrkárdal árið 1892 og bjuggu þau fyrst á Barká við fátæktarbasl en fluttu síðar að Staðartungu í Hörgárdal og bjuggu þar við rausn allt til dauðadags. Friðbjörn var þekktur hagyrðingur á sinni tíð en fleygasta vísa hans er trúlega sú um Hlíðarhreppsnefndina.

Friðbjörn Björnsson í Staðartungu höfundur

Lausavísur
Gakktu státinn lífsins leið
Krepptar að mér krumlur skók
Litlu hrósi safnar sér
Skjóni Moldi Bleikur Blesi Blakkur Þytur
Verum kátir öls við ál
Þetta er Hlíðarhreppsnefndin