SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Sonnetta, hálfrímuðDæmi
Ég leita hvítra gleymdra daga, geng
grárokkið hraun, við mjóan troðinn veg á beygðum runnum brenna gróðurlog og blakta í storminum sem þungt í fang mér leggst og strýkur stæltum rökum væng steinfljótsins brim, um úfin skýjadrög hrekur hann skúrahjörð; ó láttu mig hamfarir þínar reyna, stormur! syng um yfirbót og angist; þér um hönd, austræni jötunn! vefðu hretsins ól og slá mig, opna örva þinna lind yfir mig, treystu vilja minn og þol: ég finn mitt morgunhvíta líknarland laugaður þrautum skírður djúpri kvöl. Snorri Hjartarson: Leit Ljóð undir hættinum≈ 1950 Snorri Hjartarson*
|