Kvæði ekkilsins í Urtuvík | Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (46)
Bæjavísur  (1)
Gamankvæði  (3)
Tíðavísur  (1)

Kvæði ekkilsins í Urtuvík

Fyrsta ljóðlína:Konan, sem mér gæfan gaf
Viðm.ártal:
Konan, sem mér gæfan gaf,
gengin er til náða.
Einn ég reika út við haf,
aldurhniginn geng við staf.
Látum drottinn lífi og dauða ráða.

Kyljar af norðri, kvölda fer,
kólnar mér á fótum.
Brimið æðir út við sker
inn á landið gnýinn ber
og endurkveður inn að hjartarótum.

Ekki er fært að ýta úr vör,
öll eru lokuð sundin.
Heim ég minni hraða för,
horfin eru sældarkjör.
Þreyttum manni þær er hvíldarstundin.