Eftirmæli um Einar B. Guðmundsson | Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (46)
Bæjavísur  (1)
Gamankvæði  (3)
Tíðavísur  (1)

Eftirmæli um Einar B. Guðmundsson

Fyrsta ljóðlína:Hinn lýðkunni meiður sem lengi stóð hér
Viðm.ártal:≈ 1974
Tímasetning:1974

Skýringar

Eftirmæli um Einar B. Guðmundsson á Hraunum í Fljótum. Einar lést árið 1974.
Hinn lýðkunni meiður sem lengi stóð hér
með laufskrúð í fjallshlíðar rótum
á merkasta staðnum sem menjar hans ber
við minnið að austan í Fljótum.

Það kunnugt er flestum að kominn hann var
af kynsælum, göfugum rótum
og einkunnir margar síns ætternis bar
sem engum vann dyljast í Fljótum.

Því meðan að sólgeislinn heiðskíri hló
og hlúði sem best að hans rótum.
Þá var hann svo ýtur að ástsæld hans bjó
hjá ungum og gömlum í Fljótum.

Og meiðurinn þessi var mannbaldur sá
sem muna svo lengi vér hljótum.
Hann Einar á Hraunum vorn höfðingja þá
og hjartað í gjörvöllum Fljótum.

Því frækleik og hagleik af fjöldanum bar
og flest lutu störf hans að bótum
í sannleika bæði hann sýndist og var
hin svipmesta prýðin í Fljótum.

Hann stóð þá sem vígi mót stormanna nauð
á sterkustu kærleikans rótum
svo mörgum þeim voluðu veittist þar brauð
og vegbúnum gestum í Fljótum.

Þó nú sé hann fölnaður, fallin á láð
hans frægðar í sögunni njótum.
því minningin geymist þar gullstöfum skráð
og gleymist ei bændum í Fljótum.