Leiðsla | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Leiðsla

Fyrsta ljóðlína:Undir Eyjafjalla / öldnum jökulskalla
bls.69–70
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) þrí- og ferkvætt AAbCCb
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Undir Eyjafjalla
öldnum jökulskalla
dvel eg nótt og nýtan dag;
hefur huldukona
heillað mig til svona,
kvað hún við mig ljúflingslag?
2.
Inní bergi býr hún,
birtu dagsins flýr hún,
nóttin ein er fljóði frjáls;
utan við mig orðinn
er eg síðan skorðin
fyrst mér lagði hönd um háls.
3.
Foss og fanna skriður,
fjallabunu niður,
goluhjal við grundar blóm,
brim og báruharmur,
blíður fuglajarmur,
allt í hennar heyrist róm.
4.
Gildir allt mig einu,
ekki sinni eg neinu,
utan hennar sætum söng;
árin læt eg líða,
létt er þeim að bíða
sem að ei finnst ævin löng.
5.
Undir Eyjafjalla
öldnum jökulskalla
vil eg aldur ala minn;
eftir leiðslu langa
loks í hamra dranga
deyja svo til drósar inn.