Ingveldur Matthíasdóttir | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Ingveldur Matthíasdóttir

Fyrsta ljóðlína:Hryggð og sár
bls.372
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) tví- og ferkvætt aaBBaa
Viðm.ártal:≈ 1900
Tímasetning:1910
1.
Hryggð og sár,
brosin fá, en fleiri tár –
hvað er að æðrast, hvað er að láta,
hvað er að syrgja, trega. gráta?
Hennar voru helstu ár
hryggð og tár.
2.
Hægt og rótt!
Allt þitt líf var hreint og hljótt.
En í kuldans stranga stríði
stríddir þú með hjartaprýði;
bauðst í Guði góða nótt.
Hægt og rótt!
3.
Höfum hljótt,
hún á nú svo hægt og rótt.
Vertu sæl, vor ljúfa lilja,
litla stund vér hljótum skilja.
Hvíl í Guði, góða nótt!
Höfum hljótt!
4.
Far vel heim,
heim í Drottins dýrðargeim!
Náð og miskunn muntu finna
meðal dýrstu vina þinna;
friðarkveðju færðu þeim.
Far vel heim!