Líkför Karls XII | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Líkför Karls XII

Fyrsta ljóðlína:Hetju fallna á herðum báru
bls.89–90
Bragarháttur:Fimm línur (tvíliður) ferkvætt AbAAb
Viðm.ártal:≈ 1875
Tímasetning:1883
1.
Hetju fallna á herðum báru
hermenn rosknir yfir Kjöl,
á kinnum hrokknum, kömpum hárum,
Karls lá rekka hrím af tárum
hvítara en á fjalli föl.
2.
Til sigra’ og þrauta þankar hvarfa,
þó er sárast konungsfall,
þeir Póllands minnast nú og Narva,
og norrænnar þeir hreysti arfa
hinstan trega tólfta Karl.
3.
Áleiðis þeim ernir fylgdu
eins og konungs skyldulið,
honum líkir hátt þeir sigldu,
hvergi fyrr við líkið skildu
en borga túnin tóku við.
4.
Karlungarnir konung liðinn
til kirkju bera alla leið;
hafa þeir enn þá sama siðinn,
svefna’ ei gefst þeim hvíldarbiðin
fyrr en allt er endað skeið.
5.
Árar lögðu ei í bátinn,
áfram héldu dag og nótt,
til að kveðja konung látinn
í kví þar stóð öll þjóðin grátin,
þakti veginn þögul drótt.
6.
Riddarahólms kirkju klingja
klukkuhljóðin dimm og löng,
víkingaöldina’ út þær hringja,
yfir Norðurlanda syngja
karlmennskunni svanasöng.
7.
Í austurvegi sænska sverðið
sönginn fyrrum Hildar gól,
en – út eru nú ýtar gerðir
ófyrirsynju’ í glæfraferðir
til að nema norðurpól.