Til Jóns Sigurðssonar | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Til Jóns Sigurðssonar

Fyrsta ljóðlína:Fyrr en oss skilur skapastund
bls.41
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) ferkvætt aBBaCCdd
Viðm.ártal:≈ 1850
Tímasetning:1851

Skýringar

Sungið í skilnaðarveislu þjóðfundarmanna 12. ágúst 1851.
„In natis patrum est virtus, fortesque creantur fortibus, et nullas aquilae genuere columbas“.
(Horatius)
Fyrr en oss skilur skapastund,
skínandi þó í vonarljóma,
bíðandi nú í dvalar dróma,
hún, sem að elur okkarn fund:
Þá verðum til þín vér að líta
vænstan sem elur landið hvíta,
þú, sem að kallar saga sanns
sverðið og skjöldinn Ísalands!

Áður en burt þér förum frá,
fríðra vér skulum minnast daga,
þegar oss veitti sælu Saga:
oss þegar lét hún alla sjá
þann, sem að hafði þjóðin kosið
þrældómnum sýna frelsisbrosið,
hann, sem að kallar saga sanns
sverðið og skjöldinn Ísalands!

Allir, sem feðra elska láð,
allir, sem líta snjóvga tindinn,
þar sem að hreina himinlindin
elur sig myrkt við mökkva gráð:
Þeir skulu allir þakkir færa
þér, sem að frelsisljómann skæra
vaktir, og kallar saga sanns
sverðið og skjöldinn Ísalands!