Afturgangan | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Afturgangan

Fyrsta ljóðlína:Maður varð úti, eða hvað?
bls.42
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) aBBaCCDD
Viðm.ártal:≈ 1825
1.
Maður varð úti, eða hvað?
Ekki kom heim í réttan tíma.
Svo leið dagur, og svo leið gríma.
Leitarmenn fjórir lögðu af stað.
Allan daginn þeir eltu fætur
uns augun byrgði hetta nætur,
fundu ei grand og fóru heim.
Um fréttir var ekki gott hjá þeim.
2.
Um þessa nótt var ekki kyrrt,
illa dreymir þá menn er sofa,
því afturganga eða vofa
nöldraði við þá nokkuð stirt.
Sumir vakandi sáu drenginn
sem var hreinlega afturgenginn,
andlit, hettu og úlpu grá
augljóslega svo þekkja má.
3.
Nú fóru átta út að leita,
afreima kynni ef fyndist nár
og moldum hans fengju menn að veita
miskunnarverk og kristin tár.
Þeir fundu karlinn, það fór betur.
Þá var lifandi draugsa tetur.
Hann var strokinn úr hollri vist,
í Hraundal fékk hann á meðan gist.