Til hafs sól hraðar sér | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Til hafs sól hraðar sér

Fyrsta ljóðlína:Til hafs sól hraðar sér
bls.Nr. 294, bls. 294
Viðm.ártal:≈ 1825–1850
1.
Til hafs sól hraðar sér,
hallar út degi,
eitt skeiðrúm endast hér
á lífsins vegi.
2.
Ó, Guð! hvört annað nú
ennþá vor bíður,
auglýsir engum þú
óðar en líður.
3.
nóg er að vitum vel
vort líf að endi
og að það eins og hel
er þér í hendi.
4.
Að um oss annt sé þér,
að sért oss faðir,
hughraustir vitum vér,
vissa nóg það er.
5.
Þó dagsins skundum skeið
skjótt fram að nóttu,
brátt hennar líður leið
að ljósri óttu.
6.
Svo lífið braut er breið
til bana kífsins,
og dauðinn eins er leið
aftur til lífsins.
7.
Svo lifa sérhvör á
sem sálast eigi,
en andast eins og sá
sem aldrei deyi.
8.
Í þína umsjón nú,
ástríki faðir!
felum líf, byggð og bú,
blundum svo glaðir.