Kvæði af Ingu lífstuttu | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kvæði af Ingu lífstuttu

Fyrsta ljóðlína:Inga litla út í lönd
bls.140
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Inga litla út í lönd
og undir hlíða,
gull voru hennar axlabönd,
vel mátti hún hans bíða,
grænt og fagurt aldin undir hlíða.

2.
Hennar báðu margir menn,
ei vill frúin giftast enn.
3.
Hennar bað svo kóngurinn sjálfur,
ei vill frúin giftast heldur
4.
Þar kom einn riddari ríðandi í land,
honum var Inga gefin á hand.
5.
Níu nætur voru þau saman,
undu sér með gleði og gaman.
6.
En á þeirri tíundu nótt
þá tók Inga banasótt.
7.
Kalla lét hún hann til sín:
„Góði riddari, gá til mín.
8.
hvörninn muntu bera þig,
dauðinn tekur að sigra mig?“
9.
Eg mun lifa við sút á fold
en þú munt grafin í vígða mold.“
10.
„Ríddu þig í Húnavík,
þar er sú mey sem mér er lík.
11.
Þegar þú kemur á hennar arm
þá er í burtu tregi og harmur.“
12.
Inga gaf upp sína önd,
riddarann spenntu sorgarbönd.
13.
Líkið var borið í kirkju inn
undir hlíða,
dauður lá þar og riddarinn,
vel mátti hún hans bíða,
grænt og fagurt aldin undir hlíða.